Til að spara þér bæði fé og fyrirhöfn höfum við valið að notast við Open Source hugbúnað við gerð síðanna okkar: Joomla og WordPress.

Þetta þýðir að þú hafnar ekki í áskrift hjá okkur og “neyðist” þannig til að borga reglulega fyrir uppfærslur og viðbætur í vefumsjónarkerfi sem við búum til heldur eru þær í stöðugri þróun hjá topp forriturum um allan heim -og alltaf ókeypis!

Dæmi um frjálsan hugbúnað eru t.d. Google póstkerfið og Firefox vafrinn og dæmi um WP síður eru t.d. Eyjan.is og DV.is og Kópavogsbær notar Joomla kerfið á síðunni Kópavogur.is, þá er ónefnd heimasíða Reykjavíkurmaraþons sem við gerðum en hún er líka smíðuð í Joomla.

Til að gera gott betur hýsum við síðurnar hjá 1984 en þar nýta menn sér einnig frjálsan hugbúnað og bjóða þannig virkilega hagstæð og samkeppnishæf verð sem við hvetjum þig til að kynna þér hér.

Til að skoða smámyndir af umsjónarkerfinu WordPress geturðu smellt á smámyndirnar hér að neðan. Athugaðu að þær munu opnast í nýjum glugga:

heimasidur@heimasidur.is   |  sími 578 2502   |  Ármúli 32   |  108 Reykjavík