Í viðskiptum við hefðbundin vefsíðufyrirtæki hafa margir rekið sig á að viðhald síðunnar getur orðið kostnaðarsamt.

Þú ert rukkuð/aður fyrir mánaðarleigu á kerfinu og að auki geta kerfin verið of flókin og hver einasta breyting, t.d. að skipta um lit, kostar mikla peninga.

Við hjá heimasíður.is viljum gera þetta öðruvísi. Við notum einföld en öflug ókeypis vefumsjónarkerfi (open source) og rukkum þig þar af leiðandi ekki um krónu fyrir leigu á kerfinu.

Það eina sem þú kemst ekki hjá því að greiða er leiga á léninu sem ISNIC deilir út (7.982 kr á ári) og hýsing sem 1984 sér um (8062 kr á ári). Þetta gera um 16.000 á ári. Við tökum svo að okkur að færa síðuna yfir í kerfi sem kostar ekkert að viðhalda og þú sparar þannig heilmikið á ársgrundvelli.

Leitaðu til okkar; Ef þú ert nú þegar með vefsíðu en vilt spara útgjöldin í framtíðinni. Þá  þarftu ekki annað en að senda okkur línu og við smellum gömlu síðunni þinni upp í einfaldara og ókeypis kerfi; Ef þú ert ekki með síðu þá tökum við fund saman og förum yfir hvað þig vantar, hvað þú vilt og hvernig þú vilt hafa það.

Hvers vegna frjáls hugbúnaður?

Í “gamla daga” eða í upphafi tíunda áratugarins þegar mörg fyrirtæki voru að stíga sín fyrstu skref á netinu var ekki til neitt sem hét Open Source og ákveðin hugbúnaðarhús einokuðu markaðinn. Open Source, eða frjáls hugbúnaður, var hannaður til að vinna á móti einokun og nú er svo komið að hann tekur oft langt fram úr því gamla hvað varðar gæði og uppfærslur.

Til hvers að borga þegar þú þarft þess ekki?

Gamla leiðin: Þú borgar mánaðarlega leigu fyrir heimasmíðað vefumsjónarkerfi og svo þarftu reglulega að borga fyrir uppfærslur á kerfinu. Að auki er þér oftast gert skylt að hýsa síðuna hjá viðkomandi fyrirtæki og þetta bindur þig í hálfgerðan áskriftarklafa.

Heimasíður.is: HJÁ OKKUR ER KERFIÐ ÓKEYPIS! Og við gerum enga samninga nema fólk óski sérstaklega eftir því. Við viljum heldur ekki að viðskiptavinirnir verði of háðir okkur -svo við hjálpum þér að hjálpa þér sjálf/ur. Það er okkar markmið.

Gamla leiðin: Hvert einasta símtal kostar peninga og þú færð reikninga þegar þú átt kannski ekki von á því.

Heimasíður.is: Lausnir okkar eru það einfaldar að flestir geta bjargað sér sjálfir -en ef til þess kæmi að þú gætir það ekki -þá semjum við fyrirfram um verð fyrir viðvikið. Engir óvæntir reikningar og bara persónuleg og “kammó” þjónusta.

Gamla leiðin: Það er flókið mál að gera minnstu breytingu og það getur tekið langan tíma.

Heimasíður.is: Ef þig langar að breyta um útlit, liti eða annað á síðunni þá er það ekkert mál.

Þú getur hæglega gert það sjálf/ur en ef þú hefur ekki tíma eða langar ekki til þess þá gerum við það fyrir þig á skömmum tíma og án mikils tilkostnaðar.

heimasidur@heimasidur.is   |  sími 578 2502   |  Ármúli 32   |  108 Reykjavík