Það getur verið flókið mál að finna út hvað gerð og uppsetning heimasíðu á að kosta. Til að leysa þetta höfum við sett upp fasta verðflokka sem einfalda málin og skila þér síðunni á skömmum tíma án bakreikninga og vandræða.
A. 60.000
Fyrir þessa upphæð færðu einfalda heimasíðu sem inniheldur grunnupplýsingar um þjónustuna og/eða fyrirtækið þitt. Þú færð kennslustund í hvernig á að nota kerfið og viðhalda texta og myndum á síðunni. Hér er einungis reiknað með okkar vinnutímum, kostnaður fyrir lén og hýsingu er ekki tekið með í reikninginn (ca. 16.000,- kr á ári).
Við sjáum um að finna og setja upp lén og ganga frá hýsingunni.
- setjum upp fyrirfram hannað útlit “theme” að þínu vali
- einkatími þar sem við kennum þér á kerfið
B. 150.000
Fyrir 150.000 færðu það sama og greint er frá hér að ofan ásamt…
- ráðgjöf sem felur í sér þarfagreiningu á þínu vefsvæði
- sérhannaða síðu sem passar þínum þörfum
- innsetningu myndbanda
- margskonar tengla og litlar viðbætur (dagatal, stikkorðaskrá o.fl)
- …og tengingu við Facebook þar sem fólk getur skráð sig inn á síðuna þína
C. 3-500.000
Fyrir 3-500.000 færðu það sama og greint er frá hér að ofan ásamt…
- textavinnu og myndvinnslu í Photoshop
- ljósmyndun (t.d. myndir af starfsfólki).
- Facebook Connect tengingu
- innsetningu myndbanda
- myndagallerí
- lifandi spjallkerfi
- póstlista
- vefverslun
- …og þjónustusamning um viðhald síðunnar.
Við gerum okkar besta til að mæta þörfum þínum og skila af okkur skilvirkri og flottri síðu sem verður þér og fyrirtækinu þínu til sóma.
